Bon
Bon er snögghærð griffontík, en það
afbrigði er oftast kallað petit brabançon. Hún
kom frá Svíþjóð, frá Siv
og Christer Jernhake sem eru með Vendettas-ræktun, www.vendettas.se. Hún er hvers manns hugljúfi
og mikill fjörkálfur sem virðist alltaf vera í
góðu skapi. Hún nýtur allrar athygli
sem hún fær til hins ítrasta og afþakkar
aldrei klapp eða knús, né heldur aukabita, sé
hann í boði. . .
Bon Bon er friðarsinni, henni semur vel við öll önnur
dýr á heimilinu og er einstaklega félagslynd.
Best finnst henni að fá að sofa uppi í rúmi
og á kvöldin stingur hún sér iðulega
undir sæng hjá Sóleyju.
Hún er stolt og sýnir sig vel á hundasýningum,
enda varð hún íslenskur meistari aðeins
17 mánaða gömul og fékk þá
fyrsta alþjóðlega meistarastigið sitt.
Bon Bon var fyrsti griffon-hundurinn sem ég eignaðist
og var raunar fyrsti griffon-hundurinn á Íslandi.
Forfeður hennar eru mjög fallegir og heilbrigðir
hundar sem hafa langflestir verið afar sigursælir á
sýningum í sínum heimalöndum, auk þess
að vera heilbrigðir, geðprúðir og langlífir.
Í ættum hennar eru bæði petit brabançon
(snögghærðir)- og griffon bruxellois- hundar(stríhærðir).
Bon Bon er dugleg í útivist og hefur gaman af því
að hlaupa frjáls með hinum hundunum utan þéttbýlisins.
. . nema í slagviðri, því út í
rok og rigningu fer hún helst ekki ótilneydd!