Brynja
I Ragnar
I
Börnin
I
Myndasafn

Sóley og St. Bernharðshundurinn Kevin (ISW-08 ISCH Bernegarden´s Prince Of Thieves) í keppni ungra sýnenda haustið 2008. Það var mikill heiður fyrir Sóleyju að fá að sýna þennan glæsilega og geðprúða hund.
|
|
|
Það er ekki auðvelt að sýna jafn stóran hund og Kevin, en óendanlega skemmtilegt.
|
Sóley og Kevin slaka á. Sóley varð í 5. sæti í þetta sinn. Dómari: Auður Valgeirsdóttir.
|
Heimssýning í Stokkhólmi 2008: Sóley (12 ára) tók þátt í keppni ungra sýnenda (10 - 17 ára) og fékk að láni ljúfan dvergschnauzer. Hér er hún með dómaranum Cindy Petterson, sem sannarlega kann til verka. Sóley komst ekki í verðlaunasæti, en skemmti sér konunglega og sagði í viðtali við sænska tímaritið Hundsport að þátttaka í keppni sem þessari væri ómetanleg reynsla fyrir ungt áhugafólk um hunda.
|
|
Anna Kristín og Brynfríður Borubratta 6 mánaða í rigningu í sumarbústaðnum okkar við Þingvallavatn. |
Sóley keppti með enska pointernum, Vatnsenda Orku, á sumarsýningu HRFÍ 2008 og varð í 3. sæti með þessari frábæru tík. |
Sóley og Petit Brabançon-tíkin Bon Bon í góðum gír við Þingvallavatn, vorið 2008. |
|
Griffon-hvolpar í umhverfisþjálfun og rauða hárafarið allsráðandi. . . |
|
Sæmundur og Kata á ísi lögðu Þingvallavatni. |
|
Tvö ísköld í snjó um páska 2008: Sæmundur og Kata. |
|
Sóley með Herra Hannes og Brynfríði 4 mánaða í gönguferð.
|
|
Mikið fjör hjá hvolpunum að fara út að ganga með Sóleyju.
|
|
|
|
Sæmundur (ótrúlega fyndinn) og Sóley með Kötu á Þingvöllum.
|
Sæmundur unir sér vel með 5 vikna griffon-hvolpunum
og nýtur óskiptrar athygli þeirra. |
Dvergschnauzertíkin Kata við jólaborðið
með Sóleyju.
|
Sæmundur horfir á sjónvarpið með
dvergschnauzertíkinni Þorgerði Katrínu
og griffon bruxelloishundinum Ove. |

Kata kannar hvort aukabiti er í boði hjá
Sóleyju.
|
Anna Kristín og Sóley Ragna teikna hundamyndir
við eldhúsborðið, sumarið 2007. |

Sóley hefur gaman af keppni ungra sýnenda og
er hér með
ISCH Vandettas Bon Bon.
|

Sóley fékk þennan ameríska cocker
spaniel í skiptum, í úrslitum eitt sinn
í keppni ungra sýnenda. |
Sóley og Saga á góðri stundu, heima
í sófanum. |

Anna
Kristín 10 ára fær stóran koss
frá þýskum fjárhundi. |
|

Anna
Kristín með Sögu, sem virðist eitthvað
stúrin yfir því að fá ekki
að opna einn jólapakka fyrir kvöldmat, eins
og krakkarnir. . . |
Anna Kristín með Kisu. |

Sæmundur
og Saga á sunnudagsmorgni. |
Uppgefinn skólastrákur, yfirbugaður af.
. . Bon Bon! |
| 
Anna
Kristín og Chen kærastinn hennar í áramótagöngutúr
með Sögu gömlu, janúar 2007.
|
Chen, kærasti Önnu Kristínar á sögufrægum
slóðum með Sögu. |
| 
Anna
Kristín, ársgömul á Ítalíu
með Ricco eldri.
|
Anna Kristín og Saga á góðri stundu. |
| 
Anna Kristín með Ricco yngri á Ítalíu.
|
Anna Kristín með blendingstíkina Hörpu
Sjöfn, sem var mikill gleðigjafi meðan hún
lifði. |
| 
Sæmundur og Saga greinilega búin að fá
nóg af áramótaboðinu 2000.
|

Sóley þriggja ára með Sögu. Í
bakgrunni er besta amma í heimi, Ragna Ragnarsdóttir,
sem ávallt færir börnum og dýrum
góðgæti, enda er hún vinsælust
allra og næstum keyrð um koll þegar hún
kemur í heimsókn. |
|

Sóley
10 ára, með vinkonu sinni, dobermanntíkinni
Arwen í keppni ungra sýnenda, bíður
einbeitt eftir fyrirmælum dómara.
|
Jólin 2006. Sóley og Sæmundur, með
Bon Bon, Kisu og Sögu. |
|

Við höfum líka gaman af því
að skoða villt dýr úti í náttúrunni
og hér eru Sæmundur og Sóley í
safari-ferð í Kenya.
|

Sæmundur skimar eftir flóðhesti í
Kenya. |
| 
Sæmundur með Þorgerði Katrínu
og Sóley með Bon Bon.
|
Stundum er napurt við Þingvallavatn, en bæði
menn og dýr njóta samt hverrar mínútu
þar. |
| 
Tvær stoltar!
Sóley með blendingshvolpinn Lúkas, sem
nú býr í Borgarfirði hjá
Steinari Berg og fjölskyldu, og Elín Rós
Hauksdóttir með
weimaranerhvolpinn Bláskjár Kal of a million
$ sem var einbirni og kom því oft í
heimsókn til hvolpanna hennar Sögu.
|

Hressir hundakrakkar í viðeigandi fatnaði.
. . Sæmundur 3 ára og Sóley 4 ára.
|
Til
baka á fólkið
©
Halastjörnu-ræktun.
Allur réttur áskilinn.
Vinsamlegast virðið höfundarrétt og getið
heimilda ef þið notið efni af síðunni.
Ef þú rekst á mynd sem varin er af höfundarrétti,
vinsamlegast tilkynntu okkur það og við fjarlægjum
myndina eins fljótt og auðið er.
Ef þú hefur ábendingar um það sem
betur mætti fara á síðunni okkar, þiggjum
við góðar ábendingar með þökkum.
Vefsíða: Anja B.
Kristinsdóttir
|