Börnin á Halastjörnu
Sjá
myndasafn barnanna
Anna Kristín fæddist á Ítalíu
árið 1986 og ólst upp með dýrum frá
blautu barnsbeini. Hún lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautarskólanum í Breiðholti 2006 og stundar
nú nám í innanhúsarkítektúr
í Madrid á Spáni.
Anna Kristín hefur gaman af dýrum, en á engin
dýr sem stendur. . . nema þegar hún kemur í
foreldrahús.
Sóley
Ragna fæddist í Reykjavík árið
1996 og hefur mestan áhuga á handbolta, hundum og
hestum. Hún hefur gaman af hvers kyns þjálfun
með hundum og einnig keppni ungra sýnenda, þar
sem hún hefur náð ágætum árangri.
Hún er liðtæk í allri umönnun hundanna
og hefur mikla ánægju af henni.
Sæmundur
fæddist í Reykjavík árið
1997 og er mikill áhugamaður um karate, sem hann hefur
stundað hjá Þórshamri síðan hann
var 7 ára gamall.
Hann er mikill dýravinur, en hefur takmarkaðan áhuga
á þjálfun hundanna og enn minni áhuga
á hundasýningum. Honum finnst hinsvegar ótrúlegt
að til séu heimili án hunda eða katta.
Til
baka á fólkið
©
Halastjörnu-ræktun.
Allur réttur áskilinn.
Vinsamlegast virðið höfundarrétt og getið
heimilda ef þið notið efni af síðunni.
Ef þú rekst á mynd sem varin er af höfundarrétti,
vinsamlegast tilkynntu okkur það og við fjarlægjum
myndina eins fljótt og auðið er.
Ef þú hefur ábendingar um það sem
betur mætti fara á síðunni okkar, þiggjum
við góðar ábendingar með þökkum
|