Brynja
I Ragnar
I
Börnin
I
Myndasafn
|
 |
Það var ánægjulegt að rakkinn okkar, Int Such Isch Vendettas Overlord skyldi vinna tegundahóp 9 árið 2009 hjá írska dómaranum Seamus Oates. Hann var í 6 hunda úrtaki í keppni um besta hund sýningar. |
Hundarnir okkar eru góðir og verðugir fulltrúar tegunda sinna. Hér erum við Sóley á hundakynningu á Seltjarnarnesi 17. júní 2009 með griffon-tíkina Fríðu og dvergschnauzer-tíkina Kötu. |
|
|
Hundarnir okkar náðu frábærum árangri á sýningum árið 2009 og fyrir vikið urðum við stigahæstu ræktendur ársins hjá smáhundadeild HRFÍ: |
Ove (í fanginu) og nokkur afkvæma hans á lokahófi smáhundadeildar, þegar við vorum heiðruð sem stigahæstu ræktendur ársins. |
|
|
Þeir dagar koma, líka á Íslandi, þegar ljúft er að kæla sig niður með því að vaða og synda í fallegu vatni í fallegri náttúru Íslands. |
Ég hef yndi af ferðalögum og nýt þess að kynnast öðrum þjóðum. Hér þigg ég vatnspípu og te í Bedúínatjaldi í Egyptalandi. |
|
|
Það er altaf gaman að vera úti með hundunum, hvernig sem viðrar. Íslensk veðrátta að vetri getur verið yndisleg. |
Mér fannst gaman að sýna vinkonu mína, Ch. Notorious Clamour For Gamour (Pia) í meistaraflokki á heimssýningunni í Stokkhólmi 2008. |
|
|
Á ferð um Reykjavík í Land Cruiser-num mínum. |
Undrandi á jólagjöfum. . . |
|
|
Fyrst smáhundar komast yfir lækinn, hlýtur kerlingin að komast! |
Það er fátt betra en fara út í ísenska náttúru með hundunum sínum. |
|
|
Mér var boðið til Bandaríkjanna haustið 2009 til að halda fyrirlestur um skapgerðarmat og mikilvægi skapgerðar í hundarækt. Fyrirlesturinn var fyrir ræktendur íslenska fjárhundsins í Bandaríkjunum |
Í góðra vina hópi sem dæmdi til gamans íslenskuhæfni Bandaríkjamanna í tengslum við sýningu ISAA. Frá hægri: Þórður Runólfsson, Maggý Pease, ég, Guðrún R. Guðjohnsen og Donna McDermott, formaður ISAA. |
|
|
Griffonhundar viðraðir í taumi á Seltjarnarnesinu. Satt best að segja kunna hundarnir betur við lausahlaup. . . |
Ég hef gaman af því að vinna á sýningum HRFÍ og ræði hér málin við kanadíska dómarann Guy Jeavons. |
|
|
Með Sögu á góðri stundu í myndatöku
fyrir Morgunblaðið. Þessi skemmtilega mynd
birtist þar árið 2003 eða 2004.
|
Er ekki augljóst hvers vegna mér finnst gaman
í vinnunni? Ég er svo lánsöm að
fá oft fallega viðskiptavini í heimsókn
til mín, eins og þennan himneska japanska chin-hvolp. |
|
|
Ég
nýt þess að vera með hundunum mínum. |
Ég hef stundum fengið að sýna uppáhalds
boxertíkina mína (fyrir utan Sögu) ISCH
Socotra She's Like The Wind. ISCH Roamaro Hot Rock er til
hægri með Unni Hagalín, eiganda beggja
hundanna. |
Ég
hef gaman af því að renna fyrir silungi í
Þingvallavatni.
|
Farsímar eru mikið þarfaþing, finnst
mér, enda tek ég oft vinnusímtöl
þótt ég sé úti með
hundunum.
|
Tímaritið Matartíminn tók viðtal við mig um mat gæludýra um jólin.
|
Úrklippa úr tímaritinu Birtu sem tók
viðtal við mig um dýrahald.
|
Í viðtali í Vikunni kom fram það viðhorf mitt að það væri nánast því nauðsynlegt fyrir hundaeigendur að búa í sérbýli.
|

Ásamt fríðu föruneyti frá Ítalíu,
á blaðamannafundi vegna sýningar um Ísland. |
Til
baka á fólkið
©
Halastjörnu-ræktun.
Allur réttur áskilinn.
Vinsamlegast virðið höfundarrétt og getið
heimilda ef þið notið efni af síðunni.
Ef þú rekst á mynd sem varin er af höfundarrétti,
vinsamlegast tilkynntu okkur það og við fjarlægjum
myndina eins fljótt og auðið er.
Ef þú hefur ábendingar um það sem
betur mætti fara á síðunni okkar, þiggjum
við góðar ábendingar með þökkum.
Vefsíða: Anja B.
Kristinsdóttir
|
| |
|