Í útlöndum á yngri árum
Á árunum 1978-1983 var ég talsvert á Spáni, einkum í suðurhluta landsins, Andalúsíu, þar sem ég kynntist menningu Spánar og þjóðlífi, sem ég hef alla tíð síðan haft miklar mætur á. Eftir að hafa lokið stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands, 1983, hóf ég störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Ári síðar flutti ég til Torino á Ítalíu. Á Ítalíu var ég fréttaritari Morgunblaðsins um áraskeið, auk þess sem ég tók allmörg viðtöl við knattspyrnumenn í ítölsku úrvalsdeildinni, fyrir ítölsk, íslensk, þýsk, ensk og austurrísk tímarit.
Þar að auki stundaði ég nám í ítölsku og heimspeki og vann að sýningu og útgáfu bókar um Ísland á vegum stærsta fjallasafns heims, Museo Nazionale della Montagna í samvinnu við menntamálayfirvöld Piemonte-héraðs og menntamálaráðuneytið á Íslandi.
Árið 1990 flutti ég til Íslands og hóf aftur störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Ég skipti um starfsvettvang árið 2000 og hóf störf við tryggingasölu. Nú vinn ég hjá VÍS, Vátryggingafélagi Íslands, sem sölumaður trygginga og sérfræðingur í VísAgria dýravernd, sem sérhæfir sig í tryggingum fyrir hunda, ketti og hesta.
Störf sem tengjast hundum
Ég sat í sýningastjórn HRFÍ í fjölmörg ár og ritstýrði Sámi, tímariti Hundaræktarfélags Íslands um nokkurra ára skeið. Ég var beðin um að sitja í starfshópi HRFÍ um ræktunarmarkmið árið 2002 og hef m.a. þýtt ræktunarmarkmið boxer og chihuahua á íslensku, auk þess að liðsinna við þýðingu á ræktunarmarkmiði Tíbet spaniel.Ég hef um árabil verið prófstjóri í skapgerðarmati fyrir hunda á vegum HRFÍ og setið í stýrihópi um skapgerðarmat. Ég þýddi og staðfærði Hundabókina, sem kom út hjá AB árið 2003. Það var ákaflega mikil vinna, en að sama skapi skemmtileg.
Ég var vikulegur gestur í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 á árunum 2004-2005, þar sem ég kynnti ólíkar hundategundir, auk þess sem ég hef í gegnum tíðina komið reglulega fram í viðtölum og kynningum í fjölmiðlum þegar málefni hunda eru annars vegar.
Hundavinir
Rauða kross Íslands
Ég hef í gegnum tíðina sótt fjöldann
allan af ráðstefnum og námskeiðum sem tengjast
hundahaldi og hundarækt, bæði hér á
landi og erlendis.
Frá árinu
2005 hef ég verið í samstarfi við Rauða
Kross Íslands og verið leiðbeinandi í frumkvöðla-verkefninu
„Hundavinir”.
Hundaeigendur
fara sem sjálfboðaliðar í heimsóknir
á vegum Rauða Kross Íslands með hunda sína
og er markmiðið að gleðja þá sem ekki
eiga þess kost að búa með hundum, en vilja
njóta samvista við þá.
Verkefnið
sem kallað er „Hundavinir” hefur hlotið verðskuldaða
athygli og viðurkenningu, og er ég ákaflega stolt
af því að eiga þátt í uppbyggingu
þess.