|
Halastjörnu Brynfríður Borubratta var BOB, besti hundur tegundar á sumarsýningu HRFÍ. Dómari var hinn virti ungverski dómari, dr. Tamas Jakkel.
|
|
|
Fríða Fríð heldur sér í toppformi. |
Fegurð að hausti. |
|
|
Ove (BOS) til vinstri og Fríða Fríð (til hægri) borin saman í keppni um besta hund tegundar í júní 2009. Dóttirin hafði betur í þetta sinn. |
Fátt er betra eftir hundasýningu en létt fjallganga í góðra vina hópi. Þessi mynd er tekin um miðnætti á íslensku sumarkvöldi. |
|
|
Fríða Fríð nýtur þess að vera úti í náttúrunni, ekki síst þegar vel viðrar. Hún er ótrúlega dugleg í göngutúrum og hefur gaman af því að sigrast á hindrunum eins og lækjarsprænu. . . |
17. júní 2009, var í fyrsta sinn óskað eftir því að hundar tækju þátt í hátíðarhöldunum á Seltjarnarnesi. Fríða er hér með Sóleyju á Eiðistorgi, þar sem nokkrir vel valdir hundar heilsuðu upp á þjóðhátíðargesti. |
|
|
Uppáklædd á þjóðhátíð á Seltjarnarnesi, 17. júní 2009. |
Fallegri feðgin eru vandfundin, Fríða Fríð og pabbi hennar, Ove. |
|
|
Fríða sækir ekki í vatn, en fer að sjálfsögðu yfir læki ef á þarf að halda í gönguferðum. |
Hún er alltaf fegin að komast yfir og henni finnst betra að finna fast land undir fótum sér. |
|
|
Þótt stundum sé fýlusvipur á Fríðu Fríð, er hún oftast í góðu skapi. |
Fríða Fríð hefur gaman af því að vera úti í náttúrunni. |
|
|
Brynfríður Borubratta fékk meistarastig á vorsýningu HRFÍ 2009 hjá írska dómaranum Seamus Oates. |
Það er ekki að ástæðulausu að sú borubratta er oftast kölluð Friða Fríð, enda einstaklega lagleg tík. |
|

Mynd/ Sigurgeir Þráinn Jónsson
|
Brynfríður Borubratta leikur af miklum krafti við Kötu, enda eru þær miklir mátar, þótt ólíkar séu, enda er Kata dvergschnauzer.
| Meistarinn, Ch. Vendettas Overlord og dóttir hans, Halastjörnu Brynfríður Borubratta (til hægri) eru fallegir Griffon Bruxellois-hundar og bæði mjög skemmtilegir karakterar. |
|
|
13 mánaða var Halastjörnu Brynfríður Borubratta BOS (Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni) og fékk fyrsta íslenska meistarastigið sitt hjá írska dómaranum Seamus Oates. |
Enski dómarinn Frank Kane sagði að Fríða Fríð og pabbi hennar, Ove, væru besta par dagsins á vorsýningunni 2009. Hvoru um sig virðist ekki álíta sér samboðið að deila verðlaunapalli með hinu. . . |
|
 |
Griffon Bruxellois-tíkin Brynfríður Borubratta var sigursælasti hvolpur ársins og var heiðruð í lokahófi smáhundadeildar HRFÍ í nóvember 2008.
|
Fríða Fríð hefur góða líkamsbyggingu og hreyfir sig því fallega. Hún er góð með sig og spígsporar montin um, hvar sem hún fer.
|
|
|
Dvergschnauzer og Griffon Bruxellois togast á. . .
|
. . . og litla griffontíkin hefur betur í þetta sinn.
|
|
|
Fríða Fríð (til vinstri) í kapphlaupi við pabba sinn. |
Brynfríður Borubratta þroskast vel.
|
|
|
Brynfríður og Bon Bon í fallegu haustveðri. |
Fríða Fríð nýtur þess að vera úti í náttúrunni. |
|
 |
Fríða (Griffon Bruxellois) 10 mánaða ásamt mömmu sinni, Bon Bon (Petit Brabançon) |
Úti í garði með vinkonu sinni, dvergshnauzer-tíkinni Þorgerði Katrínu |
|
|
Fríða Fríð var besti hvolpur dagsins á haustsýningu 2008. Domari: Agnes Kertes Ganami frá Ísrael. |
Brynfríði finnst fínt að slaka á í sófanum, milli þess sem hún fremur prakkarastrik. |
Mynd/Þorsteinn Kristinsson
Brynfríður, besti hvolpur tegundar á sumarsýningu HRFÍ 2008.
|
Hennar Hátign við hlið móður sinnar og bróður. |
|
Mynd/Þorsteinn Kristinsson
Brynfríður Borubratta. var 3. besti hvolpur dagsins á sinni fyrstu hundasýningu, fimm mánaða. |
|
Með pabba sínum (C.I.B. Such Isch Vendettas Overlord) til vinstri.
|

Fríða ber nafn með rentu.
|
|