Hundarnir, myndasafn, sýningar, ættbækur...Kettirnir, myndasafnUm Brynju og fjölskylduSkrifaðu endilega í gestabókina!Ýmsar greinar eftir BrynjuMinning um fallna viniÁhugaverðir tenglar  

Griffon I Hvolpar I Dvergschnauzer I Sýningar I Ættbækur I Myndasafn I Fyrstu dýrin
Á forsíðu

Hvolparnir fæddust 5. janúar 2008.

Intuch Such Isch Vendettas Overlord
Isch Vendettas Bon Bon
Such Isch Vendettas Overlord
ISch Vendettas Bon Bon

Myndir af fyrstu vikunum eru hér að neðan. Albúm hvers og eins eru hér: Brynfríður Borubratta Séra Sófus Herra Hannes

Velkomin, Fríða!
Brynfríður Borubratta, nýkomin í heiminn.
Séra Sófus og Herra Hannes, dagsgamlir.
Dugleg mamma
Hvolparnir fundu fljótt að best var að vera nálægt mömmu snni.
Bon Bon er dugleg mamma og hlúir vel að hvolpunum sínum.
Þegar maður er þriggja daga, er lítið vit í öðru en að drekka. . . og drekka. . .
. . . og leggja sig svo eftir matinn. . .
. . . og næra sig meira. . .
. . . og sofa meira. . .
Herra Hannes, myndarlegur 5 daga hvolpur.
Fáir slá Séra Sófusi út í fegurð, 5 daga.
Griffon-dúett hjá 5 daga systkinum, Herra Hannesi og Brynfríði Borubröttu.
Séra Sófus er upprenandi tenór og vill frekar syngja sóló. . .
Brynfríður Borubratta hnusar af bróður sínum, Séra Sófusii.
Sæt systkini kúra, Herra Hannes og Brynfríður Borubratta.

5 daga hvolpur fær koss.
Heilög þrenning: Séra Sófus, Herra Hannes og Brynfríður.
Herra Hannes er duglegur að næra sig oer er orðinn pattaralegur, vikugamall.
Séra Sófus, vikugamall, fríkkar með hverjum deginum.
Eftir góða máltíð er gott að leggja sig . . .
Stund milli stríða hjá Brynfríði Borubröttu, sem lætur sig dreyma fagra drauma.
Brynfríður Borubratta 11 daga, byrjar að opna augun og kíkja á heiminn.
Herra Hannes er stór og kröftugur 11 daga hvolpur, ótrúlega myndarlegur.
Góða nótt, Sófus minn!
Og góða nótt, Hannes minn!
Herra Hannes fær góða þjónustu hjá mömmu snni.
Brynfríður Borubratta sefur vært, 11 daga gömul.
Herra Hannes, 17 daga, myndarlegur hvolpur.
Brynfríður Borubratta tjáir sig um bræður sína.
Séra Sófus er sætur 17 daga hvolpur sem kíkir á heiminn.
Brynjfríður hvíslarleyndarmáli að Sófusi bróður sínum.
17 daga svöng, lítil tík.
 

Séra Sófus 3 vikna, er ótrúlega laglegur hvolpur.
Herra Hannes 3 vikna, veltir fyrir sér lífinu og tilvreunni.
Sætir 3 vikna bræður, Séra Sófus og Herra Hannes (til hægri). Mamma þeirra, Bon Bon er á milli þeirra.
Herra Hannes nýtur þess að hafa bælið allt fyrir sjálfan sig, enda stór og stæðilegur hvolpur.
Séra Sófus, þriggja vikna og undurfríður snögghærður griffonhvolpur.
Brynfríður er heldur ekkert svo ljót. . .
Brynfríður athugar hvort tennurnar eru komnar.
Sænski ræktandi foreldranna, Siv Jernhake, skoðar Herra Hannes.
Fjögurra vikna systkini, tilbúin í útileguna!
Gjugg í Borg! Bon Bon kíkir á litlu Griffon Bruxellois-tíkina sína, Brynfríði Borubröttu sem stendur sannarlega undir nafni.

Séra Sófus er myndarhvolpur 4 vikna, en virðist samt vera agnarsmár í hinum stóra heimi.
Herra Hannes 4 vikna, bröltir um á fjórum jafnfljótum, þrátt fyrir að vera algjör feitabolla.
Stoltur ræktandi með litlu 4 vikna tíkina sína, Brynfríði Borubröttu.
4 vikna og ljóst að Brynfríður verður stríhærð, Griffon Bruxellois.

Séra Sófus (Petit Brabançon) skoðar heiminn. . . og heimurinn (tíkurnar þrjár) skoða hann. . .
Herra Hannes er ótrúlega myndarlegur 5 vikna Griffon Bruxellois-hvolpur.
 
Systkinin skipta bælinu „bróðurlega" á milli sín.
Sófus nýtur þess að fá nudd, 5 vikna gamall.
Herra Hannes fær þjálfun á borði, sem er nauðsynleg öllum ungum hvolpum, að okkar mati.
Herra Hannes 5 vikna og augljóslega stríhærður, Griffon Bruxellois.
Brynfríður Borubratta á borði í fyrsta sinn, 5 vikna og virðist hafa meðfæddan hæfileika á borðinu.
Séra Sófus var fljótur að læra að standa flottur á borðinu, enda klár og skemmtilegur hvolpur.
Vitringarnir þrír 5 vikna og Brynfríður sér ástæðu til að traðka á bróður sínum, Herra Hannesi.
Fannst þér ekki gott hjá mér, Sófus bróðir að lækka rostann í honum Herra Hannesi?
Séra Sófus, Petit Brabançon, úti í fyrsta sinn, 6 vikna gamall.
6 vikna bræður úti í snjónum. Útlitsmunur á snögghærðum og stríhærðum griffon er greinilegur á þessum aldri.
Herra Hannes, 6 vikna, fremstur í flokki foringja úti í snjónum.
Jæja krakkar, komiði inn. Þið eruð búin að vera nógu lengi úti í bili!
Dvergschnauzer-tíkin Kata tók að sér að vera leikskólastjóri og kenna hvolpunum að leika úti í snjónum.
Ég er búinn að fá nóg af útiveru í snjónum og þessum leikskólastjóra, segir Séra Sófus.
Þrír hvolpar þykjast vera stilltir og prúðir og Herra Hannes sýnir af sér sannan prúðleika með því að reka út úr sér tunguna. . .
Herra Hannes reynir ítrekað að fá systur sína í slagsmál, en hún hefur engan áhuga á því.
Herra Hannes, stórglæsilegur 9 vikna Griffon Bruxellois-hvolpur.
Séra Sófus og Brynfríður Borubratta láta reyna á þefskynið.
Brynfríður 9 vikna og virðist hugsandi yfir lífinu og tilverunni.
Sófus 9 vikna og undurfríður Petit Brabançon-hvolpur.

Mynd/RAX

Brynja stolt með þríburana sína, Séra Sófus, Brynfríði Borubröttu og Herra Hannes.

Til baka á forsíðu

© Halastjörnu-ræktun. Allur réttur áskilinn.
Vinsamlegast virðið höfundarrétt og getið heimilda ef þið notið efni af síðunni.
Ef þú rekst á mynd sem varin er af höfundarrétti, vinsamlegast tilkynntu okkur það og við fjarlægjum myndina eins fljótt og auðið er.
Ef þú hefur ábendingar um það sem betur mætti fara á síðunni okkar, þiggjum við góðar ábendingar með þökkum.
Vefsíða: Anja B. Kristinsdóttir