Kettirnir
okkar fyrr og nú
I
Myndasafn I
Sól
úr Geysi (Kisa,
f. 5. júlí 2005)
Myndaalbúm Kisu
Somali-læðan Sól úr Geysi er umburðarlynd
og dásamleg í alla staði, auk þess að
vera sannkölluð fegurðardrottning.
Sól
gengur dags daglega undir því einfalda nafni Kisa
og hún gegnir því. Hún kemur frá
ræktun sem heitir Úr
Geysi sem ræktar Somali- og Abyssinuketti.
Kisa er ljúf
og blíð, og henni semur vel við alla hundana á
heimilinu, enda er geðslag hennar með þeim hætti
að leitun er að öðru eins.
Hún færir
okkur hvorki fugla á vorin né mýs, heldur
ánamaðka, sem hún grefur upp úr moldinni
í garðinum! Hún leikur oft við litlu hundana
og er félagslyndasti köttur sem ég hef kynnst.
Kisa nýtur
þess að fara með fjölskyldunni í sumarbústaðinn
og þegar farið er út að ganga með hundana
fylgir hún alltaf í kjölfarið. Hún
er sérlega mannelsk og gæf og heldur sig ávallt
nærri fjölskyldunni.
Til
baka á forsíðu
©
Halastjörnu-ræktun.
Allur réttur áskilinn.
Vinsamlegast virðið höfundarrétt og getið
heimilda ef þið notið efni af síðunni.
Ef þú rekst á mynd sem varin er af höfundarrétti,
vinsamlegast tilkynntu okkur það og við fjarlægjum
myndina eins fljótt og auðið er.
Ef þú hefur ábendingar um það sem
betur mætti fara á síðunni okkar, þiggjum
við góðar ábendingar með þökkum.
Vefsíða: Anja B.
Kristinsdóttir