Griffon
I
Hvolparnir I
Dvergschnauzer
I
Sýningar I
Ættbækur I
Myndasafn I
Fyrstu dýrin

Boxertíkin Saga heilsar uppá Séra Magnús
örfáum dögum áður en hún
dó. |

Varðeðli Sögu hefur m.a. varnað því
að brotist var inn í bíla í götunni.
Hún er vökul og fylgist vel með umhverfi sínu. |

Saga
við sumarbústaðinn við Þingvallavatn,
þar sem hún unir sér mjög vel.
|

Saga notaði eigin aðferð til að heilla sænska
dómarann Ove Germundson og uppskar CACIB fyrir vikið. |

Saga
í sýningahringnum.
Ljósmynd/
Johan Frick Mejer. |

Saga (lengst til hægri) ásamt systkinum sínum
úr Bjarkeyjar-ræktun. Þarna var ræktunarhópurinn
í eitt af mörgum skiptum sá besti á
sýningunni. |

Hér
mynda Bjarkeyjar-systkinin enn eina ferðina besta ræktunarhóp
sýningar. Talið frá vinstri eru Patrikc
Joe, Tumi þumall, Denni
dæmalausi og Saga. Sænski dómarinn Bo Skalin
er lengst til vinstri.
|
Motivmynd/Jón Svavarsson
Saga uppstillt á sýningu. |

Saga var ótrúlega sætur lítill
8 vikna hvolpur þegar hún
kom fyrst til okkar árið 1999.
|

Ein skelfilegasta mynd sem sést hefur af jafn fallegri
tík og Sögu... en fyndin er hún... og engu
líkara en Saga sé að undirbúa keppnina
um Heimsins lengstu hundatungu. |

Saga leitar að bestu leiðinni til að komast yfir
ána. Hún er
útsjónarsamur og duglegur útivistarhundur. |

Saga heilsar uppá vin sinn úr Mosfellsbæ,
Berner
Sennen-hundinn Eldjárn. |

Saga í fangi Önnu Kristínar 13 ára.
|

Saga veit fátt betra en að orna sér við
arineld í
sumarbústaðnum á Þingvöllum,
eftir góðan göngutúr. |

Saga 5 mánaða úti í garði ásamt
Sóleyju. Vart má á milli sjá hvor
er
meira hugsandi yfir lífinu og tilverunni.
|

Saga tekur fullan þátt í öllu fjölskyldulífinu
og hér heimtar hún að taka þátt
í pakkaleik í fjögurra ára afmæli
Sæmundar. |

Sætar systur.
Bjarkeyjar Saga og Bjarkeyjar Sleggja eins og tveir draumar
í dós.
|

Saga telur sig eiga allt dót sem kemur á heimilið,
meðal annars litla svarta dótamús, sem keypt
var fyrir kettina. |

Saga, lítill og þreyttur hvolpur, sem lagði
sig hvar sem var. . |

Saga og Brynja, sælar og glaðar að loknu bronsprófi. |

Ugla Tomer var ákaflega fallegur blendingshvolpur sem
Saga eignaðist
haustið 2004. Því miður reyndist skapgerð
hennar ómöguleg og því varð
að svæfa hana rúmlega ársgamla. Fram
að þeim tíma bjó hún hjá
yndislegri fjölskyldu á Akranesi. |

Snúið heim í bústað eftir kaldan
göngutúr að vetrarlagi. |

Frá ættarmóti Bjarkeyjar-boxerhunda 2002.
Frá vinstri eru: Magnús
Þorgrímsson með ættmóðurina
Silence Is Golden (Signýju), Ólöf Karitas
Þrastardóttir með Bjarkeyjar Sindra (Picasso),
Brynja með Bjarkeyjar
Sögu og Gróa Þorsteinsdóttir með
Bjarkeyjar Sleggju.
|

Hann
var góður, þessi aukabiti. . . |
Til
baka í myndasafn
©
Halastjörnu-ræktun.
Allur réttur áskilinn.
Vinsamlegast virðið höfundarrétt og getið
heimilda ef þið notið efni af síðunni.
Ef þú rekst á mynd sem varin er af höfundarrétti,
vinsamlegast tilkynntu okkur það og við fjarlægjum
myndina eins fljótt og auðið er.
Ef þú hefur ábendingar um það sem
betur mætti fara á síðunni okkar, þiggjum
við góðar ábendingar með þökkum.
Vefsíða: Anja B.
Kristinsdóttir
|
| |
|